Við á Akrasel gerðum saman handbækur um starfið okkar. Þessar handbækur voru unnar af starfsfólki vorið 2020 og komu allir starfsmenn að þeirri vinnu.
Markmið Akrasels:
Börn og starfsfólk fái notið náttúrunnar, upplifi og læri að njóta hennar sér til gleði og aukins þroska.
Mikilvægi útiveru:
Útivera barna er mjög mikilvæg og hafa rannsóknir sýnt að útivera hefur jákvæð áhrif á einbeitingu, nám, félagsleg samskipti barna og að börn sem eru mikið úti verða sjaldnar veik.
Leiksvæði:
Leikskólinn Akrasel og nánasta umhverfi hans er vinnustaður barnanna allt frá eins og hálfsárs til sex ára aldurs. Börn dvelja í leikskólanum í allt að níu klukkustundir á dag og er því mikilvægt að leikskólalóðin sé hönnuð með þarfir þeirra í huga.
Leiksvæði Akrasels er hannað með það að markmiði að börnin fái útrás fyrir leik, sköpunarkraft og hreyfingu hvort sem það er í sjálfsprottnum leik eða skipulögðum.
Virðing:
Virðing fyrir náttúrunni er mikilvægur þáttur í starfi Akrasels og það er þáttur okkar allra að kenna börnum virðingu gagnvart lífverum, landslagi, stöðum, heimkynnum annarra og náttúrunni allri. Leiksvæðið gefur okkur gullið tækifæri til að kenna börnunum í litlum og stórum hóp um mikilvægi náttúrunnar og virðingarinnar.
Kennum þeim meðal annars að:
• Fara vel með trén og annan gróður í garðinum
• Moka í sandkassanum
• Hjóla á hjólastígum
• Fara vel með leiktækin og dót sem notað er í útiveru
• Ganga frá eftir útiveru
Garðvinna:
Virkjum börnin og kennum þeim að hugsa um garðinn okkar.
• Týnum arfa
• Hreinsum beðin
• Setjum niður lauka
• Hrífum yfir moldina
• Týnum rusl.
Í handbók Akrasels um ævintýraferðir eru upplýsingar um helstu staðina hérna á Akranesi til að ganga með börnunum að.
Þar kemur fram hvað er hægt að gera með börnunum og hvaða verkefni við getum gert með þeim.