Góð gjöf

Tvær hressar konur þær Berglind og Lilja frá Slysavarnafélaginu Líf á Akranesi komu færandi hendi til okkar í Akrasel í vikunni.
Þær færðu öllum börnum leikskólans endurskinsmerki með áletruninni Skínandi.
Við náðum mynd af þeim stöllum með börnunum á Gljúfri.

Við þökkum fyrir hugulsemi og að láta sig varða um öryggi okkar í skammdeginu.