Akrasel meðal þátttakenda á uppskeruhátíð Evrópusamstarfs 8. maí - Evrópusamvinna í 30 ár

Uppskeruhátíð Evrópusamvinnu verður haldin í Kolaportinu 8. maí milli klukkan 14:00 og 18:00. Íslendingar hafa verið afkastamiklir þátttakendur í evrópsku samstarfi sl. 30 ár og á hátíðinni verður góðum árangri fagnað og geta gestir kynnt sér fjölmörg verkefni sem hafa fengið styrki úr samstarfsáætlunum ESB. Auk þess munu nokkur evrópsk sendiráð kynna land sitt og menningu á fjölbreyttan hátt. Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson opnar hátíðina og boðið verður upp á tónlistaratriði á sviði og afmælisköku, kaffi og djús fyrir börnin.

Verkefnin sem taka þátt koma alls staðar að úr samfélaginu, enda hafa áætlanir ESB styrkt íslenska aðila á sviði menntamála, kvikmyndagerðar, æskulýðsmála, rannsókna, nýsköpunar og fleiri sviðum.

Tónlist, bíómyndir, áhugaverð verkefni, fræðsla og skemmtilegar uppákomur fyrir alla aldurshópa!

Sjáumst í Kolaportinu, miðvikudaginn 8. maí, milli klukkan 14 og 18!

Evrópusamvinna í 30 ár er sannkölluð uppskeruhátíð fyrir íslenskt samfélag og er fólk á öllum aldri velkomið að mæta, fræðast og fagna með okkur.

Hægt er að lesa nánar um þennan viðburð á linknum hér