Orka-vatn
Vatnsnotkun er mikil á Íslandi en við stöndum enn í þeirri trú að engu máli skipti hve mikið vatn við látum renna, hvort sem það er kalt vatn í glasið eða heitt vatn í sturtuna. Hægt er að spara vatn á ýmsan hátt t.d. með því að nota ,,spar-sturtuhausa" á sturtuna og láta vatnið ekki leka óþarflega lengi. Sparsturtuhausinn notar minni en helming af því vatni sem fer í venjulega sturtu. Þú verður samt jafn hrein/n og baðið er jafn þægilegt.